Ferill 274. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 274 . mál.


527. Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um útflutning á ferskum fiski.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



    Hversu mikið var flutt út af ferskum fiskflökum á árunum 1994–96? — Svar óskast sundurliðað eftir magni og verðmæti á sambærilegu verðlagi.
    Hvernig skiptist þessi útflutningur eftir fisktegundum og markaðslöndum, sundurliðað eftir magni og verðmæti á sambærilegu verðlagi?
    Hve miklar voru heildartollgreiðslur af þessum útflutningi?
    Hvaða áhrif hafa GATT-samkomlagið og EES-samningurinn haft á tollgreiðslur af þessum útflutningi?


Skriflegt svar óskast.