Ferill 280. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 280 . mál.


534. Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um eftirgjöf afnotagjalda Ríkisútvarpsins til aldraðra og öryrkja.

Frá Svavari Gestssyni.



    Hversu margir elli- og örorkulífeyrisþegar misstu undanþágu frá greiðslu afnotagjalda Ríkisútvarpsins árið 1995?
    Hversu margir úr sama hópi misstu undanþáguna árið 1996?
    Hvaða breytingum er gert ráð fyrir árið 1997 og hvers vegna?
    Hverjar verða breytingar á útgjöldum Ríkisútvarpsins eða ríkissjóðs á þessu ári samkvæmt fyrirliggjandi áætlunum?


Skriflegt svar óskast.