Ferill 311. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 311 . mál.


572. Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um kennara og leiðbeinendur í grunn- og framhaldsskólum.

Frá Birnu Sigurjónsdóttur.



    Hvert er hlutfallið milli grunnskólakennara og leiðbeinenda miðað við stöðugildi annars vegar og fjölda kennara hins vegar:
         
    
    í Reykjavík,
         
    
    í öðrum sveitarfélögum á landinu?
    Hvert er hlutfallið milli framhaldsskólakennara og leiðbeinenda miðað við stöðugildi annars vegar og fjölda kennara hins vegar:
         
    
    í Reykjavík,
         
    
    í öðrum sveitarfélögum á landinu?
    Hvernig skiptast leiðbeinendur í grunnskólum annars vegar og framhaldsskólum hins vegar eftir menntun og kyni, þ.e. hvert er hlutfall kvenna og karla sem hafa:
         
    
    lokið háskólaprófi,
         
    
    háskólamenntun án lokaprófs,
         
    
    stúdentspróf sem lokapróf,
         
    
    aðra menntun á framhaldsskólastigi,
         
    
    grunnskólapróf sem lokapróf?


Skriflegt svar óskast.