Ferill 348. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 348 . mál.


621. Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um ferliverk á Sjúkrahúsi Reykjavíkur.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



    Hve mörg ferliverk voru unnin á Sjúkrahúsi Reykjavíkur á árunum 1993–96, sundurliðað eftir árum?
    Hvernig skiptast ferliverk á sérfræðigreinar?
    Hvert er hámark þeirrar upphæðar sem sjúklingur hefur þurft að greiða
         
    
    fyrir skurðaðgerð á bæklunardeild,
         
    
    fyrir augnaðgerð,
         
    
    fyrir speglun, t.d. maga- eða ristilspeglun?
         Svar óskast sundurliðað eftir árunum 1993–96.
    Hvað greiða læknar fyrir aðstöðu og þjónustu sem spítali veitir?
    Hafa þær greiðslur verið samræmdar?


Skriflegt svar óskast.