Ferill 370. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 370 . mál.


648. Fyrirspurn



til forsætisráðherra um kostnað við störf einkavæðingarnefndar.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



    Hver er orðinn heildarkostnaður við störf einkavæðingarnefndar, sundurliðað í þóknun til nefndarmanna, í einstaka fundi og ráðstefnur, útgáfu, auglýsingar og aðra helstu útgjaldaliði?
    Hver er orðinn heildarkostnaður einstakra ráðuneyta, stofnana og hins opinbera í heild sem tengist einkavæðingaráformum frá stjórnarskiptum árið 1991?


Skriflegt svar óskast.