Ferill 393. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 393 . mál.


687. Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um framkvæmd laga nr. 55/1996, um tæknifrjóvgun.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



    Hvaða reglur hefur ráðherra sett um hve lengi má geyma kynfrumur og fósturvísa, sbr. 10. gr. laga nr. 55/1996?
    Hvaða nánari reglur setti ráðherra fyrir 1. júní 1996 um framkvæmd tæknifrjóvgunar, sbr. 13. og 15. gr. laganna?
    Hverjir eiga sæti í vísindasiðanefnd sem fjalla skal um rannsóknir á fósturvísum, hvenær var nefndin skipuð og hvernig hljóðar erindisbréf hennar?





























Prentað upp.