Ferill 455. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 455 . mál.


769. Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um ferðakostnað sjúklinga.

Frá Arnbjörgu Sveinsdóttur.



    Hversu margar ferðir sjúklinga og aðstandenda þeirra innan lands hafa verið greiddar af Tryggingastofnun frá árinu 1990, sundurliðað eftir árum, sjúkdómum og landshlutum?
    Hversu margar kærur hafa borist til tryggingaráðs vegna úrskurða Tryggingastofnunar um ferðakostnað sjúklinga innan lands frá árinu 1990, sundurliðað eftir árum, sjúkdómum og landshlutum?
    Hversu mörgum kærum á úrskurðum Tryggingastofnunar um ferðakostnað sjúklinga innan lands hefur tryggingaráð hafnað frá árinu 1990, sundurliðað eftir árum, sjúkdómum og landshlutum?


Skriflegt svar óskast.