Ferill 488. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 488 . mál.


819. Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um framtíðaráætlanir um útgjöld til menntamála.

Frá Árna M. Mathiesen.



    Hvaða áætlanir eða spár hefur menntamálaráðuneytið gert um framtíðarútgjöld ríkisins til menntamála?
    Út frá hvaða mannfjöldaspám er gengið og hvernig er áætlað að þróun útgjalda verði?



Skriflegt svar óskast.