Ferill 554. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 554 . mál.


912. Tillaga til þingsályktunar



um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 1997.

(Lögð fyrir Alþingi á 121. löggjafarþingi 1996–97.)



    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 1997 sem gengið var frá með orðsendingaskiptum í Reykjavík og Þórshöfn 16. og 17. janúar 1997.

Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.


    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á samningi milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 1997 sem gengið var frá með orðsendingaskiptum í Reykjavík og Þórshöfn 16. og 17. janúar 1997. Samningurinn er prentaður sem fylgiskjal með tillögu þessari.
    Áður en samningur þessi var gerður var á grundvelli samnings landanna frá 1976 um heimildir Færeyinga til veiða í lögsögu Íslands ákveðið að færeyskum skipum væri heimilt að veiða 5.000 lestir af botnfiski við Ísland á árinu 1997.
    Samkvæmt samningi þessum er færeyskum nótaskipum veitt heimild til veiða á allt að 30 þúsund lestum af loðnu innan íslenskrar lögsögu á tímabilinu janúar til apríl 1997. Takist ekki að veiða þetta magn er færeyskum skipum heimilt að veiða það sem á vantar á tímabilinu júlí til desember 1997. Gert er ráð fyrir því að heimilt sé að landa aflanum til vinnslu á Íslandi en að óheimilt sé að vinna eða frysta um borð afla sem veiddur er á fyrra tímabilinu og að utan Íslands sé einungis heimilt að landa þeim afla til bræðslu.
    Samningurinn gerir enn fremur ráð fyrir gagnkvæmri heimild skipa hvors aðila til kolmunnaveiða innan lögsögu hins á árinu 1997. Vonir standa til að slík gagnkvæm heimild muni hvetja til veiða á kolmunna.
    Loks er í samningnum staðfest heimild íslenskra skipa til veiða á allt að 1.000 lestum af makríl og 2.000 lestum af síld, annarri en norsk-íslenskri, innan færeyskrar lögsögu á árinu 1997.
    Samningur þessi er nær óbreyttur samningi landanna frá 1996 að öðru leyti en því að nú gefst Færeyingum kostur á að nýta allar loðnuveiðiheimildir sínar á vorvertíð.
    Samningurinn tók gildi til bráðabirgða 17. janúar 1997 og mun öðlast endanlegt gildi þegar tilkynnt hefur verið um að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið fullnægt.



Fylgiskjal.

SAMNINGUR


milli Íslands og Færeyja


um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 1997.



a. Bréf utanríkisráðherra Íslands til lögmanns Færeyja.



Reykjavík, 16. janúar 1997

Hr. lögmaður
Edmund Joensen
Föroya Landsstýri
Torshavn

Herra lögmaður
    Ég leyfi mér að vísa til samtala á milli íslenskra og færeyskra stjórnvalda um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 1997.
    Mér skilst að samkomulag hafi orðið um eftirfarandi samning:

„Samningur


milli Íslands og Færeyja


um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 1997.



1. gr.

    Færeyskum nótaskipum er heimilt að veiða allt að 30 þúsund lestir af loðnu innan efnahagslögsögu Íslands á tímabilinu janúar til apríl 1997. Takist ekki að veiða þetta magn geta færeysk nótaskip veitt það sem á vantar á tímabilinu júlí til desember 1997.
    Heimilt er að landa aflanum til vinnslu á Íslandi. Óheimilt er að vinna eða frysta afla sem veiddur er á fyrra tímabilinu um borð og utan Íslands er einungis heimilt að landa þeim afla til bræðslu.

2. gr.

    Færeyskum skipum eru heimilar veiðar á kolmunna innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 1997. Að höfðu samráði við landsstjórn Færeyja geta íslensk stjórnvöld ákveðið að veiðarnar stundi aðeins tiltekinn fjöldi skipa samtímis.

3. gr.

    Íslenskum skipum eru heimilar veiðar á kolmunna innan fiskveiðilögsögu Færeyja á árinu 1997. Að höfðu samráði við íslensk stjórnvöld getur landsstjórn Færeyja ákveðið að veiðarnar stundi aðeins tiltekinn fjöldi skipa samtímis.

4. gr.

    Íslenskum skipum eru heimilar veiðar á allt að 1.000 lestum af makríl innan fiskveiðilögsögu Færeyja á árinu 1997 og veiðar á allt að 2.000 lestum af síld úr síldarstofnum öðrum en þeim norsk-íslenska.

5. gr.


    Færeysk skip, sem stunda veiðar samkvæmt samningi þessum innan íslenskrar lögsögu, skulu hlíta sömu reglum og gilda um veiðar íslenskra skipa, þar á meðal reglum um veiðarfæri og veiðisvæði.
    Íslensk skip, sem stunda veiðar samkvæmt samningi þessum innan færeyskrar lögsögu, skulu hlíta sömu reglum og gilda um veiðar færeyskra skipa, þar á meðal reglum um veiðarfæri og veiðisvæði.
    Skipum við kolmunnaveiðar er óheimilt að hafa um borð veiðarfæri sem nota má til botnfiskveiða.

6. gr.

    Hvor aðili um sig skal tilkynna lista með þeim veiðiskipum sem hyggjast stunda veiðar samkvæmt samningi þessum innan lögsögu hins aðilans. Skip sem eru á listum þessum hafa ein rétt til veiða innan lögsögu þess aðila.
    Áður en veiðar hefjast skal tilkynna viðkomandi yfirvöldum um nafn skips og veita aðrar upplýsingar er máli skipta.
    Veiðiskip skal tilkynna um komu inn í lögsögu og staðarákvörðun og gefa upplýsingar um afla sem veiddur hefur verið fyrir komu inn í lögsöguna og síðan daglega tilkynna um staðarákvörðun og afla. Þegar farið er úr lögsögu skal tilkynna um áætlað aflamagn.“

    Ef þér staðfestið að ofangreint sé skilningur yðar leyfi ég mér að leggja til að samningur þessi taki gildi til bráðabirgða þegar svarbréf yðar þar um er dagsett og endanlega þegar tilkynnt hefur verið um að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið endanlega fullnægt.

                                            Halldór Ásgrímsson
                                            utanríkisráðherra

b. Svarbréf varalögmanns Færeyja.



Tórshavn, 17. januar 1997

Uttanríkisráðharri
Halldór Ásgrímsson
Uttanríkisráðuneytið, Ísland

    Eg loyvi mær at vátta bræv tygara í dag, sum ljóðar soleiðis:

    “Eg loyvi mær at vísa til samráðingar millum íslendskar og føroyskar myndugleikar um fiskiveiðu í íslendskum og føroyskum sjógvi í 1997.
    Eg havi skilt at semja er vorðin um fylgjandi:

“Semja


millum Ísland og Føroyar


um fiskiveiðu í íslendskum og føroyskum sjógvi í 1997.



1. gr.

    Føroyskum nótaskipum er loyvt at veiða upp til 30 túsund tons av lodnu í íslendskum búskaparøki í tíðarskeiðinum frá januar til apríl 1997. Tann nøgd, sum ikki er veidd í nevnda tíðarskeiði, kunnu føroysk nótaskip veiða í tíðarskeiðinum juli til desember 1997.
    Loyvt er at landa veiðuna til framleiðslu í Íslandi. Tað er ikki loyvt at framleiða ella frysta um borð tann partin av veiðuna, sum er veidd fyrra tíðarskeiðið og uttan fyri Ísland er bert loyvt at landa sama partin til ídnað.

2. gr.

    Føroyskum skipum eru loyvt at veiða svartkjaft í íslendskum búskaparøki í 1997. Eftir samráðingar við landsstýrið í Føroyum kunnu íslendskir myndugleikar áseta mest loyvda skipatal, sum kunnu veiða samstundis á leiðini.

3. gr.

    Íslendskum skipum er loyvt at veiða svartkjaft í føroyskum sjógvi í 1997. Eftir samráðingar við íslendskar myndugleikar kann Føroya landsstýri áseta mest loyvda skipatal, sum kunnu veiða samstundis á leiðini.

4. gr.

    Íslendskum skipum er loyvt at veiða upp til 1.000 tons av makreli í føroyskum sjógvi í 1997 og at veiða upp til 2.000 tons av sild úr øðrum sildarstovni enn várgýtandi norðurhavssild.

5. gr.

    Føroysk skip, sum veiða sambært hesi avtalu í íslendskum búskaparøki, skulu fylgja somu veiðireglum, sum galda fyri íslendsk skip um reiðskap og fiskileiðir.
    Íslendsk skip, sum veiða sambært hesi avtalu í føroyskum sjógvi, skulu fylgja somu veiðireglum, sum galda fyri føroysk skip um reiðskap og fiskileiðir.
    Skipum í veiði eftir svartkjafti er ikki loyvt at hava reiðskap til botnfiskveiðu um borð.

6. gr.

    Partarnir skulu fráboða ein lista yvir tey fiskifør, sum ætla at veiða á økjunum hjá hvørjum øðrum. Bert tey fiskifør, sum eru á hesum lista, hava loyvi at veiða á økjunum.
    Áðrenn fiskiskapurin byrjar skulu avvarðandi myndugleikar hava boð um navn á skipi saman við øðrum upplýsingum av týðningi.
    Skipið skal boða frá, tá tað kemur á veiðiøkið, uppgeva knøttstøðu og veiðinøgd, sum er veidd, áðrenn komu á økið, og síðani uppgeva knøttstøðu og veiðu hvønn dag. Tá skip fer av veiðiøkinum skal mett veiða verða givin upp.”

    Um tygum staðfesta at tað, ið stendur omanfyri, er í samsvar við fatan tygara, loyvi eg mær at leggja afturat, at hetta fær gildi fyribils, tá bræv tygara hesum viðvíkjandi er dagsett, og endaliga tá boðað er frá, at stýrisskipanarligu krøvini hjá hvørjum landi eru uppfyllt.”

    Eg loyvi mær at staðfesta at tað, ið stendur omanfyri, er í samsvar við fatan Føroya Landsstýri og avtalan fær gildi fyribils í dag og endaliga, tá boðað er frá, at stýrisskipanarligu krøvini hjá hvørjum landi eru uppfylt.

                                            Við mestu hávirðing
                                            Eilif Samuelsen
                                            varaløgmaður