Ferill 594. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 594 . mál.


1037. Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um tekjutryggingu lífeyrisþega.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



    Hversu margir lífeyrisþegar hafa fengið skerta tekjutryggingu vegna tekna maka síns árin 1994, 1995, 1996 og 1997, sundurliðað eftir árum:
         
    
    ellilífeyrisþegar,
         
    
    öryrkjar?
    Hversu margir lífeyrisþegar fengu ekki tekjutryggingu vegna tekna maka síns árin 1994, 1995, 1996 og 1997, sundurliðað eftir árum:
         
    
    ellilífeyrisþegar,
         
    
    öryrkjar?


Skriflegt svar óskast.