Ferill 455. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 455 . mál.
1277. Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Arnbjargar Sveinsdóttur um ferðakostnað sjúklinga.
Á árunum 1990–96 greiddi Tryggingastofnun ríkisins samtals ferðakostnað vegna 20.391 ferðar sjúklinga og aðstandenda þeirra innan lands. Um nánari sundurliðun eftir árum, sjúkdómaflokkum og landshlutum vísast til fylgiskjals I. Tekið skal fram að við sundurliðun eftir sjúkdómaflokkum er miðað við ICD-númer (International Classification of Deseases), sbr. fylgiskjal VI.
Á árunum 1990–96 bárust tryggingaráði alls 255 kærur vegna ákvarðana Tryggingastofnunar ríkisins um ferðakostnað innan lands. Úrskurðir tryggingaráðs vegna framangreindra mála voru samtals 204. Um nánari sundurliðun eftir árum vísast til fylgiskjals II. Þar koma jafnframt fram ástæður þess að kærumálum til tryggingaráðs á umræddu tímabili lauk ekki öllum með úrskurði ráðsins.
Um sundurliðun úrskurða eftir sjúkdómaflokkum vísast til fylgiskjals III. Er sú sundurliðun sem þar kemur fram miðuð við ICD-númer.
Um sundurliðun úrskurða eftir landshlutum vísast til fylgiskjals IV.
Á árunum 1990–96 hafnaði tryggingaráð kröfum kæranda í 164 málum. Um nánari sundurliðun synjana eftir árum og landshlutum vísast til fylgiskjals IV.
Um sundurliðun synjana eftir sjúkdómaflokkum vísast til fylgiskjals V. Er sú sundurliðun miðuð við ICD-númer.
Fylgiskjal I.
Greiðsluþátttaka TR í ferðum sjúklinga innan lands árin 1990–96.
(2 síður myndaðar)
Fylgiskjal II.
Kærur til tryggingaráðs vegna ferðakostnaðar
sjúklinga innan lands árin 1990–96.
(1 síða mynduð)
Fylgiskjal III.
Úrskurðir eftir sjúkdómaflokkum (ICD númer + HNE).
(1 síða mynduð)
Fylgiskjal IV.
Úrskurðir og synjanir eftir landshlutum.
(1 síða mynduð)
Fylgiskjal V.
Synjanir eftir sjúkdómaflokkum (ICD númer + HNE).
(1 síða mynduð)
Fylgiskjal VI.
ICD-númer.
(1 síða mynduð)