Matarskattur á sjúklinga

Þriðjudaginn 27. janúar 1998, kl. 13:40:13 (3011)

1998-01-27 13:40:13# 122. lþ. 52.1 fundur 163#B matarskattur á sjúklinga# (óundirbúin fsp.), forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur

[13:40]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Ég ætla ekki að taka afstöðu til tillagna sem ég hef hvorki séð né heyrt. Á hinn bóginn er meginþorri þjónustu sjúkrahúsanna, hverju nafni sem nefnist, frír almenningi og honum að kostnaðarlausu eins og menn þekkja.