Endurgreiðsla sérfræðikostnaðar

Þriðjudaginn 27. janúar 1998, kl. 13:46:31 (3017)

1998-01-27 13:46:31# 122. lþ. 52.1 fundur 164#B endurgreiðsla sérfræðikostnaðar# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur

[13:46]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Hv. þm. spurði hvort í bígerð væri að hækka lyfjakostnað. (JóhS: Hlutdeild sjúklinga í lækniskostnaði.) Svo er ekki. Hv. þm. spyr líka um hlutdeild sjúklinga í lækniskostnaði. Um það hefur ekki verið rætt í ríkisstjórn og því engar ákvarðanir teknar þar um.