Afgreiðsla EES-reglugerða

Þriðjudaginn 27. janúar 1998, kl. 14:15:46 (3041)

1998-01-27 14:15:46# 122. lþ. 52.1 fundur 169#B afgreiðsla EES-reglugerða# (óundirbúin fsp.), KÁ
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur

[14:15]

Kristín Ástgeirsdóttir:

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. svörin. Ég var fyrst og fremst að fiska eftir því hvort vandamál væru uppi á ákveðnum sviðum og hægt gengi en í máli hæstv. ráðherra kom fram að það sé þá helst á sviði umhverfismála.

Það er rétt sem kom fram að almennt gengur þetta vel og samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum fengið sem höfum átt þess kost að fylgjast með störfum EFTA hefur ekki verið kvartað sérstaklega yfir Íslandi. Ummælin komu mér á óvart en það er ekki annað að gera en að reyna að standa sig og okkur ber skylda til þess að koma reglugerðunum í lög og í framkvæmd eftir því sem kveðið er á um.