Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Forseti áréttar að mat hans er að hér hafi með formlegum hætti verið rétt að staðið og ekkert sem brýtur í bága við þingsköp. Á hinn bóginn ætlar forseti ekki að úrskurða um smekk. Um það geta og mega hv. þm. verið ósammála.