Vegáætlun 1998-2002

Fimmtudaginn 29. janúar 1998, kl. 16:51:34 (3245)

1998-01-29 16:51:34# 122. lþ. 55.1 fundur 378. mál: #A vegáætlun 1998-2002# þál., 379. mál: #A langtímaáætlun í vegagerð# þál., HjálmJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 55. fundur

[16:51]

Hjálmar Jónsson (andsvar):

Herra forseti. Það er vissulega rétt að það eru lagðir aurar í jarðgangarannsóknir. Það tók ég fram. Það er nánast útilokað að farið verði í jarðgöng til 2010 samkvæmt vegáætluninni. Ég hef lesið það út úr henni. Ég vil hins vegar árétta það að við eigum að viðurkenna að jarðgangagerð geti komið til fyrir árið 2010. Það vil ég gera að höfuðmáli.