Ólafur Þ. Þórðarson fyrir GMS

Mánudaginn 02. febrúar 1998, kl. 15:01:44 (3262)

1998-02-02 15:01:44# 122. lþ. 56.91 fundur 187#B Ólafur Þ. Þórðarson fyrir GMS#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 56. fundur

[15:01]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem ég get ekki sótt þingfundi á næstunni vegna sérstakra anna leyfi ég mér, með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Vestf., Ólafur Þ. Þórðarson, frv. alþm., taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Gunnlaugur M. Sigmundsson, 2. þm. Vestf.``

Ólafur Þ. Þórðarson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hann boðinn velkominn til starfa.