Rannsókn á störfum fíkniefnadeildar lögreglunnar

Mánudaginn 02. febrúar 1998, kl. 16:52:23 (3278)

1998-02-02 16:52:23# 122. lþ. 56.3 fundur 92. mál: #A rannsókn á störfum fíkniefnadeildar lögreglunnar# beiðni um skýrslu frá dómsmrh., JóhS (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 56. fundur

[16:52]

Jóhanna Sigurðardóttir (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég hef beint ákveðnum fyrirspurnum til hæstv. dómsmrh. sem hann mun væntanlega svara í lokaræðu sinni. Ég hafði ætlað mér að nýta seinni ræðutíma minn til að koma aftur inn á þessi mál eftir því sem svör ráðherra gæfu tilefni til. Er eitthvað í þingsköpum sem kemur í veg fyrir að ég geti nýtt mér síðari ræðutíma minn eftir að hæstv. ráðherra hefur kvatt sér hljóðs í annað sinn?