Jóhanna Sigurðardóttir (um fundarstjórn):
Herra forseti. Ég vil láta í ljós þá skoðun mína að mér finnst þetta fyrirkomulag óeðlilegt. Auðvitað getur í máli hæstv. dómsmrh., sem hefur síðasta orðið, komið fram eitthvað sem gefur tilefni til frekari umræðu þar sem örstutt andsvör duga ekki til. Ég ítreka það að í þingsköpunum sjálfum, þó að hæstv. forseti vísi til hefðar, er ekkert sem segir að þingmenn þurfi að nýta þann 15 mínútna ræðutíma sem þeir hafa tvisvar áður en hæstv. dómsmrh. hefur flutt síðari ræðu sína.