Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar):
Herra forseti. Það er rétt að mér láðist að svara fyrirspurninni. Ráðuneytið hefur ekki beint þeirri fyrirspurn til lögreglustjóraembættisins hvort þarna geti verið um fleiri mál að ræða og þar af leiðandi ekki fengið svör við því en það er vissulega réttmæt ábending að það kynni að vera skynsamlegt að bera slíka fyrirspurn fram.