Framhald umræðu um fæðingarorlof

Miðvikudaginn 04. febrúar 1998, kl. 15:54:05 (3420)

1998-02-04 15:54:05# 122. lþ. 59.92 fundur 194#B framhald umræðu um fæðingarorlof# (um fundarstjórn), JóhS
[prenta uppsett í dálka] 59. fundur

[15:54]

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Það stefnir í að við munum þurfa að ræða þetta mál aftur í þriðja skipti í bútum og pörtum. Að ræða svona stórt mál án þess að hægt sé að ljúka því og taka til þess tilskildan tíma finnst mér mjög óeðlilegt. Ég óska eftir því að málum verði hagað þannig að næst þegar málið kemur á dagskrá, sem ég vona að verði þá sem allra fyrst, vegna þess að það er vont eins og hæstv. forseti veit að það líði langt á milli umræðna, að við fáum þá nægan tíma til að ljúka umræðunni og það sé tryggt að hæstv. heilbrrh. verði við umræðuna.