Þjóðlendur

Fimmtudaginn 05. febrúar 1998, kl. 14:18:07 (3474)

1998-02-05 14:18:07# 122. lþ. 60.2 fundur 367. mál: #A þjóðlendur# frv., SighB (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 60. fundur

[14:18]

Sighvatur Björgvinsson (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að minna á að það var hæstv. félmrh. sjálfur sem kvaddi sér hljóðs næstur á eftir forsrh. og hóf umræðu um tillögu sem hann ætlar að biðja félmn. að flytja við annað frumvarp, frv. til sveitarstjórnarlaga. Þannig að hafi einhver leitt það mál inn í umræðu á Alþingi var það hæstv. félmrh. sem hafði að því frumkvæði.