Iðnaðarráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég vil ítreka það sem ég sagði áðan að ég tel það ekki vera mitt að leggja mat á þá niðurstöðu sem þessir ágætu fræðimenn komust að á sínum tíma. Hins vegar held ég að hv. þm. Hjörleifur Guttormsson verði að viðurkenna að tímarnir eru breyttir. Réttarframkvæmdin hefur ekki verið eins og kannski var búist við að hún mundi þróast. Það staðfesta í fyrsta lagi samningar sem menn hafa gert um þessi réttindi þar sem menn hafa horft á þau sem eignarréttindi. Í öðru lagi hafa gengið dómar sem líka hafa staðfest að þarna væri um eignarréttindi að ræða. (HG: Hvaða dómar?)