Rannveig Guðmundsdóttir:
Virðulegi forseti. Þingflokkur jafnaðarmanna greiðir atkvæði gegn því að veita afbrigði fyrir þessu máli og sér ekki ástæðu til að frv. fái sérstaka flýtimeðferð í þinginu. Með frv. er gripið inn í kjaradeilu sem er á ábyrgð samningsaðila. Það er ekki verjandi að banna verkfall eins og lagt er til í frv. en verkfallinu er ekki frestað heldur bannað um tiltekinn tíma. Verkfallið hefur einungis staðið í örfáa daga og frv. er gert þannig úr garði að meira að segja er stuðst við orðalag LÍÚ í frumvarpstextanum. Framkoma ríkisstjórnarinnar gagnvart sjómönnum í dag þar sem þeim var ekki kynnt efni frv. þrátt fyrir fyrirheit þar um er sérlega ámælisverð. Með frv. er stefnt að lögfestingu þátta sem tilheyra kjarasamningum. Þingflokkur jafnaðarmanna er andvígur frv. og mun takast á við ríkisstjórnina um efni þess en vill að það fái eðlilega umræðu á Alþingi. Hugmyndir ríkisstjórnarinnar að knýja fram bann á löglegt verkfall (Forseti hringir.) sjómanna á einum sólarhring er lítilsvirðing við sjómenn og Alþingi.
Virðulegi forseti. Þingflokkur jafnaðarmanna mun ekki greiða fyrir afgreiðslu málsins með sérstakri undanþágu frá þingsköpum. Þingflokkurinn greiðir atkvæði gegn afbrigðum. Ég segi nei.