Framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna

Þriðjudaginn 10. febrúar 1998, kl. 16:26:43 (3607)

1998-02-10 16:26:43# 122. lþ. 63.1 fundur 376. mál: #A framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna# þál., GGuðbj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 63. fundur

[16:26]

Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er alveg sannfærð um að sú nefnd sem nú er að störfum getur lokið störfum sínum á þeim tíma sem ætlaður er til þess, þ.e. með vorinu og í sumar. Ég tel auðvelt að komast yfir þessar upplýsingar. Með nefndinni eru góðir starfsmenn og ég tel víst að þessi vinna styrki það að þetta sjónarmið verði haft að leiðarljósi í vinnu nefndarinnar.