Viðvera ráðherra

Þriðjudaginn 10. febrúar 1998, kl. 17:14:20 (3622)

1998-02-10 17:14:20# 122. lþ. 63.89 fundur 209#B viðvera ráðherra# (um fundarstjórn), Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 63. fundur

[17:14]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Forseti tekur undir með hv. þm. að það er mikilvægt að ná góðu samstarfi milli þingmanna og ráðherra. Forsn. hefur margrætt þessi mál og reynt að stilla þannig upp dagskrá funda að það henti mjög báðum aðilum og raðað þá inn á dagana málum sem heyra undir sama ráðherrann. Undir þetta skal því tekið og forseti mun flytja þessi orð hv. þm. inn í forsn.