Viðvera ráðherra

Þriðjudaginn 10. febrúar 1998, kl. 17:17:00 (3626)

1998-02-10 17:17:00# 122. lþ. 63.89 fundur 209#B viðvera ráðherra# (um fundarstjórn), Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 63. fundur

[17:17]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Forseti vill að þessi umræða snúist um störf fundarins en ekki málefnalegan ágreining. Hann mun ræða um þetta í forsn., að mjög mikilvægt sé að skipuleggja þingfundina og tryggja að hæstv. ráðherrar séu viðstaddir umræðu ef þingmenn óska þess og reynt verði að binda það þannig að menn verði ekki fyrir áföllum.