Flm. (Kristinn H. Gunnarsson):
Herra forseti. Frá því var gengið að ég mundi mæla fyrir þessu máli að ráðherra viðstöddum. Ég vek athygli á því að málið var lagt fram snemma í haust og hefur síðan beðið þess að komast á dagskrá. En það hefur ekki verið hægt fá fundartíma þannig að hæstv. ráðherra gæti verið viðstaddur fyrr en nú í dag. Þegar til kastanna kemur rýkur hæstv. félmrh. á dyr. Auðvitað kann eitthvað að hafa komið upp sem hann verður að sinna, en engar skýringar um það hafa komið fram. Mér finnst það óvirðing við þingmenn sem hafa óskað eftir því að fá að flytja sín mál í viðurvist ráðherrans og vonandi fleiri stjórnarþingmanna. Það er búið að hafa fyrir því að raða þeim málum saman sem heyra undir málasvið hæstv. félmrh. þannig að hann þurfi ekki að ómaka sig niður í Alþingi nema einu sinni út af þeim frv. og þingsályktunartillögum sem fyrir þinginu liggja á þessu sviði.
Ég verð að segja, herra forseti, að ég er afar ósáttur við þennan framgang hjá hæstv. ráðherra að því gefnu að ekki séu gildar skýringar á en þær hafa ekki komið fram.
(Forseti (GÁ): Vill hv. þm. fá að fresta málinu?)
Í ljósi þess að frv. var lagt fram snemma á haustdögum og málið kemst til umræðu nú í febrúar, treysti ég ekki á að láta þetta tækifæri til að mæla fyrir málinu fram frá mér fara. Mér þykir ekki líklegt að fyrir þingfrestun í vor verði unnt að finna annan dag til að mæla fyrir þessu máli jafnframt því að hæstv. félmrh. geti verið viðstaddur. Ég verð því að láta af þeirri ósk minni að hæstv. ráðherra sé viðstaddur og mæli fyrir frv. þrátt fyrir það.
Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt hv. þm. Svavari Gestssyni að leggja fram, á þskj. 178, frv. til laga um lækkun fasteignaskatta og hlutdeild sveitarfélaga í virðisaukaskatti. Í frv. er að finna róttækar tillögur um breytingar á skattkerfinu.
Tilgangur frumvarpsins er fjórþættur. Í fyrsta lagi er lagt til að skattar almennings verði lækkaðir með því að lækka fasteignaskatta. Sú aðgerð lækkar húsnæðiskostnað fólks bæði í eigin íbúð og í leiguhúsnæði og má ætla að dreifing skattalækkunarinnar verði þannig að lágtekjufólk fái jafnvel meira í sinn hlut en yrði við almenna lækkun á tekjuskatti.
Í öðru lagi er lagt til að afnumin verði skattlagning á annan álagningarstofn en fasteignamat, en það endurspeglar markaðsvirði eignarinnar. Í þriðja lagi er fasteignaskattur gerður að skatti til ríkissjóðs einvörðungu samhliða þeirri breytingu að fella saman að nokkru leyti eignarskatt til ríkissjóðs og fasteignaskatt til sveitarfélaga og að nokkru leyti fella niður fast eignaskattinn.
Loks eru þau nýmæli að sveitarfélögum er ætlaður hlutur úr sköttum á vörur og þjónustu, en lagt er til að hluti af virðisaukaskatti renni til sveitarfélaga.
Ákvæði frumvarpsins lækka fasteignaskatt í tveimur áföngum. Lækkun vegna breytinga á álagningarstofni tæki strax gildi, en gerð er tillaga um þá breytingu að álagning miðist við fasteignamat í stað þess að leggja skattinn á afskrifað endurstofnverð fasteigna margfaldað með markaðsstuðli fasteigna í Reykjavík samkvæmt matsreglum Fasteignamats ríkisins. Víða er mikill munur á þannig reiknuðum álagningarstofni og fasteignamati. Í dreifbýli getur munurinn verið á bilinu 50--75% sem þýðir að lagt er á t.d. 10 millj. kr. stofn í stað 2,5--5,0 millj. kr. Í þéttbýli er einnig víða mikill munur, oft 30--40%. Samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins er það einungis í fimm sveitarfélögum landsins sem fasteignamatið er gjaldstofn til fasteignaskatts. Í öðrum sveitarfélögum er fasteignamatið uppreiknað samkvæmt framangreindri aðferð. Þessi fimm sveitarfélög eru Reykjavík, Kópavogur, Seltjarnarnes, Garðabær og Hafnarfjörður. Frumvarpið lækkar gjaldstofn til fasteignaskatts á mannvirki í öðrum sveitarfélögum en þeim fimm sem áður eru talin úr 433 milljörðum kr. í 309 milljarða kr. og miðað við áætlaða meðalálagningarprósentu 0,38 verður skattalækkunin tæplega 500 millj. kr. á ári. Samkvæmt áðurgreindum upplýsingum kemur einnig fram að að meðaltali er fasteignamat eigna hækkað um 40% til að fá út gjaldstofninn.
Ef íbúðir og íbúðarherbergi eru athuguð sérstaklega kemur í ljós að fasteignamat þeirra er um 178 milljarðar kr. en gjaldstofninn liðlega 265 milljarðar kr. Þar er hækkunin liðlega 87 milljarðar kr. eða um 50%. Með öðrum orðum er að meðaltali lagður 50% hærri fasteignaskattur á íbúðareigendur í sveitarfélögum landsins, að frátöldum sveitarfélögunum fimm, en fasteignamat eignarinnar réttlætir. Með því að færa gjaldstofn til fasteignamats verður lækkunin að meðaltali um þriðjungur af núverandi fasteignaskatti hjá hverjum íbúðareiganda.
Síðari áfanginn verður í upphafi árs 1999, en þá fellur niður fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði jafnhliða því að eignarskattur ríkisins hækkar úr 1,2% í 1,7% af eignarskattsstofni eins og hann er skilgreindur í lögum um tekjuskatt og eignarskatt. Þessi breyting lækkar skatta á einstaklinga um 1.800 millj. kr., fasteignaskatturinn sem fellur niður er um 2.500 millj. kr. og hækkun eignarskattsins á móti er um 700 millj. kr.
Þá er til viðbótar lagt til að fasteignaskattur á landbúnað sé alveg felldur niður og er áætlað að það nemi um 100 millj. kr. Stærstur hluti er vegna útihúsa á jörðum og ræktaðs lands.
Þá er ákvæðum um álagningarstofn til vatnsgjalds breytt til samræmis við breytingar á álagningarstofni til fasteignaskatts og leiðir sú breyting til svipaðrar hlutfallslegrar lækkunar á vatnsgjaldi að óbreyttri álagningarprósentu. Lækkunin gæti numið um 150 millj. kr. en á það er að líta að vatnsgjald á að standa undir kostnaði sveitarfélags við rekstur vatnsveitu og leiði breytingin til þess að tekjur dugi ekki fyrir útgjöldum munu sveitarfélögin væntanlega hækka álagningarhlutfallið til að auka tekjurnar. Ekki er því gert ráð fyrir að til lengdar verði um neina lækkun að ræða vegna þessarar breytingar.
Þó ber á það að líta að þann tíma sem lög um vatnsgjald hafa gilt þá hefur að jafnaði verið innheimt mun hærra gjald til reksturs vatnsveitu en lög gera ráð fyrir að heimilt sé. Ég hef gengið nokkuð eftir því á undanförnum árum að félmrh. gangi komi því til leiðar að sveitarfélögin fari að lögum um vatnsgjald. Enn sem komið er hefur það ekki borið árangur og óvíst að félmrn. beiti sér í þeim efnum.
Samanlögð áhrif af breytingunni eru að fasteignaskattur lækkar um 2.100 millj. kr. á einstaklinga og um 300 milljónir á atvinnurekstur, eða samtals um 2.400 millj. kr. Ekki er óvarlegt að gera ráð fyrir að lækkun gjalda einstaklinga verði um 21 þús. kr. á ári að meðaltali um landið allt þegar breytingin er að fullu komin til framkvæmda. Lækkunin verður eðlilega meiri í sveitarfélögum sem í dag leggja á uppreiknað fasteignamat eða um 27 þús. kr. á ári.
Af lækkuninni leiðir einnig að húsaleiga ætti að lækka sem nemur lækkun á rekstrarkostnaði húsnæðisins.
Á árinu 1990 var lögum um tekjustofna sveitarfélaga breytt þannig að í stað þess að leggja fasteignaskatt til sveitarfélaga á samkvæmt fasteignamati, sem endurspeglar mat á markaðsvirði eignarinnar, var tekin upp sú regla að miða við áætlað markaðsverð eignarinnar eins og það væri, ef eignin væri í Reykjavík. Með öðrum orðum var verðmæti eignarinnar ekki lengur álagningarstofninn heldur hærri tala. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það að óeðlilegt hlýtur að teljast að mönnum sé gert skylt að borga eignarskatt af verðmætum sem þeir eiga ekki. Það hlýtur að koma mjög til álita hvort slík skattlagning hafi nokkurn tíma staðist ákvæði stjórnarskrár, ekki síst eftir að ákvæði jafnræðisreglu voru færð í stjórnarskrána fyrir tveimur árum. Má færa fyrir því gild rök að skattlagningu af þessu tagi svipi mjög til eignaupptöku.
Skiljanlegt er að sveitarfélög telji sig þurfa svipaðar tekjur þar sem þau hafi sambærileg verkefni og útgjöld, en það er ekki réttlætanlegt að jafna tekjur sveitarfélaga með misháum eignarskatti. Benda má á að eignarskattur til ríkissjóðs samkvæmt lögum um tekjuskatt og eignarskatt er lagður á raunverulegt matsverð eignarinnar, þ.e. fasteignamat og álagningarreglur gilda um land allt.
Lagt er til í frumvarpinu að fasteignaskattur verði tekjustofn ríkissjóðs. Fyrir því eru gild rök. Eðlilegt er að skattar af fasteignum séu á einni hendi og þannig verði betra samræmi milli álagningarreglna og yfirsýn yfir það hverju skatturinn skilar. Þá er verðmæti fasteigna mjög mismunandi eftir því hvar á landinu eignin er og því skilar eignarskattur mismunandi miklum tekjum. Af þeim sökum eru skattar á fasteignir óheppilegur tekjustofn fyrir sveitarfélög.
Samkvæmt ákvæðum frumvarpsins fellur niður fasteignaskattur skv. a-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga og annar fasteignaskattur flyst til ríkissjóðs. Þá er lagt til að eignarskattur einstaklinga hækki úr 1,2% í 1,7% af eignarskattsstofni. Með þessari breytingu greiða einstaklingar einungis eignarskatt af eignum sínum samkvæmt lögum um tekjuskatt og eignarskatt. Sú grundvallarbreyting verður þá að eignarskattur verður lagður á eignir samkvæmt markaðsvirði og að frádregnum skuldum, en telja verður afar óeðlilegt að lagður sé eignarskattur á hærra mat en markaðsvirði eignarinnar og auk þess án þess að skuldir séu dregnar frá eigninni eins og nú er gert með fasteignaskatti til sveitarfélaganna.
Gert ráð fyrir að í framtíðinni verði núverandi eignarskattur og fasteignaskattur á atvinnurekstur samræmdir á sambærilegan hátt og lagt er til varðandi einstaklinga og verður auðveldara við það að eiga þegar báðir skattarnir eru orðnir ríkisskattar.
Samkvæmt núgildandi lögum eru tekjustofnar sveitarfélaga ekki tengdir almennum hagvexti í þjóðfélaginu beint heldur ráðast þeir að mestu af staðbundnum efnahagssveiflum auk launabreytinga samkvæmt kjarasamningum. Þannig hafa sveitarfélög, sem byggjast að mestu á sjávarútvegi, búið við verulegan samdrátt á undanförnum árum, sérstaklega þar sem stuðst er við botnfiskveiðar, á sama tíma og nokkur hagvöxtur varð almennt í efnahagslífi landsmanna. Þetta er mjög áberandi um þessar mundir þar sem umtalsverð uppsveifla er í hagkerfinu bæði vegna þess að uppsveiflan nær ekki til landsins alls og hins að tekjur af uppsveiflunni renna nær eingöngu í ríkissjóð. Telja verður eðlilegt að aukinn hlutur af tekjum sveitarfélaga komi af óbeinum sköttum en minni af staðbundnum tekjustofnum. Þannig verði leitast við að jafna að nokkru um landið mismunandi efnahagslegum áhrifum eftir atvinnugreinum og landsvæðum.
Í frumvarpinu er lagt til að 12% tekna af virðisaukaskatti renni til sveitarfélaga og er gert ráð fyrir að sú fjárhæð nú jafngildi tekjum sveitarfélaga af fasteignaskatti.
Á þessu ári koma til hjá ríkissjóði tekjur af fjármagnstekjuskatti. Er áætlað að þær nemi um 700 millj. kr. fyrst í stað en geti orðið um 1.100 millj. kr. Reyndar var þessi áætlun endurskoðuð við gerð fjárlaga við síðustu áramót og er nú áætlað að tekjur á árinu 1998 verði meiri en þær 700 millj. sem gert var ráð fyrir þegar frv. þetta var samið. Þykir eðlilegt að verja þessum tekjum til þess að lækka skatta almennings af fasteignum. Slík skattalækkun skilar sér vel til almennra launþega og dreifing hennar verður þannig að stærri hluti skattalækkunarinnar fer til tekjulágra en við lækkun á skattprósentu til tekjuskatts.
Á þessu ári nemur lækkun fasteignaskattsins um 500 millj. kr. ef ákvæði frv. ná fram að ganga. Sveitarfélögunum verður bætt tekjutapið með greiðslu úr ríkissjóði. Tekjur ríkissjóðs af fjármagnstekjuskatti á þessu ári gera það að verkum að ríkissjóður stendur jafnréttur eftir og vel það.
Á árinu 1999 koma ákvæði frumvarpsins að fullu til framkvæmda, ef samþykkt verður. Skattalækkun verður um 3.100 millj. kr., um 300 millj. kr. á atvinnurekstur vegna lækkunar á álagningarstofni fasteignaskatts og afnámi skattsins á eignir í landbúnaði og um 2.800 millj. kr. vegna niðurfellingar fasteignaskatts á einstaklinga. Þá flyst fasteignaskattur á atvinnurekstur til ríkissjóðs. Fasteignaskattur hefur skilað sveitarfélögum um 5.800 millj. kr. og er lagt til að þeim verði bætt það með hlutdeild í virðisaukaskatti. Á móti þessu tekjutapi ríkissjóðs kemur í fyrsta lagi fasteignaskattur sem er áætlaður vera um 2.700 millj. kr., þ.e. fasteignaskattur á atvinnurekstur, hækkun á eignarskatti einstaklinga um 700 milljónir kr. og áætlaðar tekjur af fjármagnstekjuskatti sem hér eru áætlaðar um 1.100 millj. kr. Samtals eru þetta um 4.500 millj. kr. Gera má ráð fyrir að nýjar tekjur ríkissjóðs af óbreyttum tekjustofnum vegna hagvaxtar skili þeim 1.300 millj. kr. sem upp á vantar. Má í því sambandi benda á að í skattatillögum ríkisstjórnarinnar sem samþykktar voru á Alþingi síðasta vor er gert ráð fyrir að lækkun skatta frá og með 1999 nemi liðlega 5.000 millj. kr. sem tekjur vegna hagvaxtar muni borga að mestu leyti.
Frumvarpið skiptist í þrjá meginkafla. I. kaflinn fjallar um lækkun tekjuskatta. Þar eru lagðar til breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, á lögum um vatnsveitur sveitarfélaga og á lögum um tekjuskatt og eignarskatt.
Í II. kafla er að finna ákvæði til breytingar á lögum um virðisaukaskatt og í III. kafla frv. er að finna ákvæði um gildistöku.
Lagt er til að fella úr lögum um tekjustofna sveitarfélaga nokkur ákvæði, fyrst og fremst það að álagningarstofn fasteignaskatts skuli miðast við annað en fasteignamat og verður þá fasteignamat eftir að frv. hefur náð fram að ganga.
Í öðru lagi er felldur niður a-liður 3. mgr. 3. gr. laganna sem kveður á um að undanþegið fasteignaskatti verði íbúðir og íbúðarhús ásamt lóðarréttindum, erfðafestulönd og jarðeignir sem ekki eru nytjaðar til annars en landbúnaðar, útihús og mannvirki á bújörðum sem tengd eru landbúnaði, svo og sumarbústaðir ásamt lóðarréttindum.
Þá er lagt til að úr lögunum verði felld ákvæði sem verða óþörf ef þær breytingar ná fram að ganga sem ég hef þegar kynnt.
Gerð er tillaga um þá breytingu á lögum um vatnsveitur sveitarféalga, að álagningarstofn vatnsgjalds skuli vera fasteignamat eignar í stað þess sem nú er, að miðað er við uppreiknað fasteignamat samkvæmt reglum sem kynntar hafa verið fyrr í framsöguræðunni.
Þá er í II. kafla frv. um breytingar á lögum um virðisaukaskatt lagt til að til sveitarfélaga renni 12% af þeirri fjárhæð sem ríkissjóður hefur í tekjur af virðisaukaskatti, eins og fyrr var greint. Er gert ráð fyrir að fjárhæðinni verði skipt á milli sveitarfélaganna í hlutfalli við íbúafjölda þeirra. Skal hlutfallið þannig ákvarðað að ár hvert verði íbúafjöldinn í hverju sveitarfélagi miðaður við meðaltal síðustu þriggja ára á undan. Loks er í gildistökuafla frv. kveðið á um gildistöku einstakra greina þess, en frv. mun að fullu koma til framkvæmda um næstu áramót, 1. janúar 1999.
Fylgiskjal er með frv. þar sem fram kemur yfirlit sem Fasteignamat ríkisins hefur tekið saman um samanlagt fasteignamat á landinu öllu, stærðir fasteigna og sundurliðun eftir einstökum fasteignum og það síðan sundurliðað eftir fasteignamati annars vegar og gjaldstofni hins vegar, lóðarmati, flatarmáli og fjölda matseininga. Einnig er önnur tafla, sem er sú sama og fyrri taflan, en þó með þeirri breytingu að sveitarfélögin fimm eru dregin frá þar sem fasteignamat er ekki uppreiknað. Í þeirri töflu kemur glögglega fram hversu mikil breyting verður á gjaldstofni við þá breytingu sem kveðið er á um í lögunum um upphækkun fasteignamatsins áður en fasteignaskattur er lagður á.
Ég fer ekki nánar út í þessa töflu en þarna er að finna mjög fróðlegar upplýsingar sem ég hvet hv. alþingismenn til að kynna sér. Frv. var flutt á síðasta þingi en náði þá ekki fram að ganga og er endurflutt lítið breytt frá því sem þá var.
Herra forseti. Ég hef lokið við að gera grein fyrir efnisatriðum þessa frv. og legg til að því verði vísað til félmn. og 2. umr.