Atvinnuleysistryggingar

Þriðjudaginn 10. febrúar 1998, kl. 17:58:33 (3632)

1998-02-10 17:58:33# 122. lþ. 63.11 fundur 437. mál: #A atvinnuleysistryggingar# (elli- og örorkulífeyrir) frv., EOK
[prenta uppsett í dálka] 63. fundur

[17:58]

Einar Oddur Kristjánsson:

Herra forseti. Fyrir rúmum tveimur árum tók ég þátt í undirbúningi nýrra laga um atvinnuleysistryggingar ásamt fleirum. Þegar ég hlusta á málflutning hv. þm. Guðrúnar Helgadóttur heyrist mér það sem hún er að benda á alveg rétt. Ég ætla að okkur hafi orðið á mistök vegna þess að við höfum ekki skoðað þetta í réttu ljósi.

Ég vona því, herra forseti, að hv. félmn. taki þetta mál til mjög vinsamlegrar athugunar og reyni að leiðrétta lögin hvað þetta varðar.