Atvinnuleysistryggingar

Þriðjudaginn 10. febrúar 1998, kl. 17:59:32 (3633)

1998-02-10 17:59:32# 122. lþ. 63.11 fundur 437. mál: #A atvinnuleysistryggingar# (elli- og örorkulífeyrir) frv., Flm. GHelg
[prenta uppsett í dálka] 63. fundur

[17:59]

Flm. (Guðrún Helgadóttir):

Hæstv. forseti. Ég kem aðeins upp til að þakka hv. þm. fyrir góðar undirtektir og skal verða síðust til að dæma þau mistök sem ég held að hér hafi orðið á síðasta þingi. Satt að segja er það ekki neinn leikur að átta sig á þeim frumskógi sem atvinnuleysisbætur, almannatryggingar og lífeyrissjóðir eru orðin að. Þessi mistök verða því auðveldlega fyrirgefin en ég held að hér sé atriði sem auðvelt er að leiðrétta og ég þakka hv. þm. fyrir að taka undir það.