Svavar Gestsson:
Herra forseti. Þegar þessi mál voru rædd í fyrradag réðst hæstv. forsrh. mjög harkalega að stjórnarandstöðunni og að þingsköpunum, talaði um að hér væri um einstakan atburð að ræða sem ætti sér ekkert fordæmi í þingsögunni, gleymdi því að lögin sem við studdumst við eru frá 1991. Formaður þingflokks Sjálfstfl. hafði í hótunum við þingið og stjórnarandstöðuna í tengslum við þetta mál.
Ég tel að þeir eigi ekki bara að draga frv. til baka, endemis frv. frá í fyrradag sem liggur hér enn þá, heldur eigi þeir að biðja Alþingi afsökunar á hótunum sínum, báðir tveir. Þetta var svo ósmekklegt, hvernig þeir settu hlutina upp, að óhjákvæmilegt er að krefjast þess að forsrh. biðji Alþingi afsökunar á tilætlunarseminni gagnvart Alþingi við afgreiðsluna á þessu máli, af því að ekki var farið fram á að það yrði að lögum í dag. Það var um það talað við stjórnarandstöðuna í fyrradag að það yrði að lögum milli hálfeitt og eitt í gær, þriðjudag. Þannig liggur málið. Það er veruleikinn sem við blasir.
Síðan þetta gerðist á mánudaginn var hefur Alþingi beðið í fjötrum og varla getað komið saman sínum dagskrám. Alþingi kom t.d. saman dagskrá fyrir fundinn í dag um hádegi, með 1--2 tíma fyrirvara. Það er búið að gera tilraun til þess að mínu mati af hálfu hæstv. ríkisstjórnar að lítillækka Alþingi í þessum efnum og það er sérstakt áhyggjuefni.
Ég fagna því fyrir hönd þingræðisins á Íslandi, liggur mér við að segja, að minni hluti Alþingis sló á puttana á hæstv. forsrh. Davíð Oddssyni á mánudaginn var. Ég vona að hann læri eitthvað af því eins og sumir ráðherrar hans hafa stundum gert af svipuðu tilefni.