Fyrirspyrjandi (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Það er ljóst að þetta er mál sem kallar á ítarlegri umræðu en við höfum tök á hér vegna þess að það er alltaf að koma betur í ljós eftir því sem við ræðum þetta meira. Hæstv. ráðherra viðurkennir það hér að atvinnuleysi sé raunverulega meira, að það sé dulið atvinnuleysi þannig að atvinnuleysi sé meira en kemur fram í þeim tölum sem við ræðum hér.
Ég vil spyrja félmrh. um skýringu hans á þessu varðandi öryrkjana. Er það virkilega svo að öryrkjar hafi á síðustu árum átt mjög erfitt með að fá vinnu á atvinnumarkaðnum? Er skýringin á því að öryrkjum hafi fjölgað um helming á síðastliðnum tíu árum sú að þeir fái hreinlega ekki vinnu á vinnumarkaðnum og að vinnumarkaðurinn hafni hreinlega öryrkjum og þeir neyðist þess vegna til þess að fara á bætur hjá Tryggingastofnun? Ég held að það þurfi að skoða þetta sérstaklega.
Ég held líka að við þurfum að skoða sérstaklega það sem hæstv. ráðherra nefndi í svari sínu áðan varðandi eldri konur. Hæstv. ráðherra segir að þær eigi erfitt með að fá vinnu. Ég hygg að það sé alveg rétt. Konur á miðjum aldri hafa mjög oft leitað til mín, kannski konur bara rétt um fimmtugt sem eru þá á besta aldri og hafa ítrekað reynt að sækja um störf sem hafa verið auglýst. En þeim er ávallt hafnað. Það er mjög alvarlegt ef konur eru hættar að vera gjaldgengar á vinnumarkaðnum þegar þær eru um fimmtugt. Er það ekki eitthvað sem við þurfum að skoða, herra forseti? Ég beini því til ráðherrans alveg sérstaklega að ég held að það þurfi að skoða stöðu öryrkja á vinnumarkaðnum og stöðu kvenna á miðjum aldri sérstaklega.
Við þurfum kannski að grípa til miklu meiri og skilvirkari úrræða gagnvart þeim sem eru langtímaatvinnulausir. Hæstv. ráðherra segir að þeir fái (Forseti hringir.) síðastir atvinnu á vinnumarkaðnum. Það er mjög alvarlegt þegar svo er vegna þess að það brýtur auðvitað niður hvern einasta mann að þurfa að vera marga mánuði eða kannski árum saman atvinnulaus. Og jafnvel þó að við séum í uppsveiflu í atvinnulífinu þá er þessu fólki hreinlega hafnað á vinnumarkaðnum. Það er mjög alvarlegt.