Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):
Herra forseti. Það er rétt sem fram hefur komið að þetta mál hefur verið mjög lengi á döfinni og menn lengi velt því fyrir sér hvernig best væri að sinna því. En það er fyrst í tíð þessarar ríkisstjórnar sem nú situr sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að láta málið til sín taka. Ég tel að það sé alveg ljóst þegar menn skoða gang málsins á undanförnum missirum að mjög skipulega hefur verið unnið að framgangi þess og ljóst er að fullur vilji er að komast að skynsamlegum niðurstöðum og hinir færustu sérfræðingar hafa verið kallaðir til til þess að allt liggi sem skýrast fyrir þegar til lokaákvörðunar kemur.