Flm. (Guðný Guðbjörnsdóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessi svör. En mig langar að spyrja hvort það hafi verið rætt í ríkisstjórn að ráðamönnum, t.d. ráðherrum, verði gert að sækja þessi námskeið. Það skiptir mjög miklu máli hvort þetta er frjálst val eða hvort þetta verður liður í því að koma á samþættingarstefnunni sem ríkisstjórnin hefur þegar samþykkt á opinberum vettvangi að vinna eftir og er í þessari þáltill. um jafnréttisáætlun. Ég vil því aðeins heyra frá hæstv. ráðherra hvort það hefur verið rætt í ríkisstjórn eða hvað hann hugsar sér í þeim efnum. Ég er uppeldisfræðilega menntuð og þar af leiðandi almennt hlynntari því að fólk sæki sér fræðslu af fúsum og frjálsum vilja, en reyndin virðist vera sú að þessi mál eru oft talin vera mjúk mál og að konur hafi meiri áhuga á þeim. En aðferðin sem notuð var í Svíþjóð reyndist mjög vel, þ.e. að tengja þetta við virðingu þannig að það yrði hreinlega skylda toppráðamanna að sækja þau. Og ég tel í raun og veru að sú aðferð sé skilyrði þess að takmarkið náist, þ.e. að þetta verði liður í því að fræða æðstu ráðamenn í raun um þessi mál.