Almenn hegningarlög

Fimmtudaginn 12. febrúar 1998, kl. 15:47:35 (3781)

1998-02-12 15:47:35# 122. lþ. 66.12 fundur 451. mál: #A almenn hegningarlög# (kynferðisbrot gegn börnum) frv., dómsmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur

[15:47]

Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar):

Herra forseti. Vegna síðustu fyrirspurnar hv. 13. þm. Reykv. verð ég að segja að mér þykir ólíklegt að refsiréttarnefnd geti skilað fullbúnu frv. þannig að það geti komið til meðferðar á þessu þingi en þetta er eitt af þeim verkefnum sem hún hefur sérstaklega fengið til meðferðar auk almennrar endurskoðunar á hegningarlögunum.