Réttarstaða barna til umgengni við báða foreldra sína

Fimmtudaginn 12. febrúar 1998, kl. 16:12:21 (3786)

1998-02-12 16:12:21# 122. lþ. 66.10 fundur 173. mál: #A réttarstaða barna til umgengni við báða foreldra sína# þál., GGuðbj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur

[16:12]

Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þá till. til þál. sem hér er til umræðu. Eins vil ég láta í ljós ánægju mína með þær upplýsingar sem ráðherra hefur gefið og vona að hin góða grg. sem er í þessari till. nýtist í starfi nefndarinnar.

Mig langar hins vegar að spyrja hæstv. ráðherra hvenær hann gerir ráð fyrir að nefndin ljúki störfum. Það kom ekki fram, en þetta er mjög brýnt mál sem þarf að taka á sem allra fyrst.