Réttarstaða barna til umgengni við báða foreldra sína

Fimmtudaginn 12. febrúar 1998, kl. 16:13:25 (3788)

1998-02-12 16:13:25# 122. lþ. 66.10 fundur 173. mál: #A réttarstaða barna til umgengni við báða foreldra sína# þál., GGuðbj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur

[16:13]

Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Að gefnu tilefni vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hvenær var þessi nefnd skipuð og hve oft hefur hún komið saman? Tilefnið er kannski það að oft þegar hér eru lagðar fram tillögur ýtir það við framkvæmdarvaldinu. Um það er ekkert nema gott að segja en ég vil fá að heyra hvernig þetta nefndarstarf gengur eða hve langt það er komið.