Íþróttalög

Föstudaginn 13. febrúar 1998, kl. 12:18:39 (3825)

1998-02-13 12:18:39# 122. lþ. 67.3 fundur 447. mál: #A íþróttalög# (heildarlög) frv., GGuðbj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 67. fundur

[12:18]

Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Það mun vera rétt að Vala Flosadóttir hefur að mestu leyti alist upp í Svíþjóð og fengið íþróttauppeldi sitt þar enda tel ég að það hefði varla verið mögulegt miðað við þær aðstæður sem íslenskum íþróttastúlkum eru boðnar að ná þeim árangri sem hún hefur gert. Ég held því að þetta ætti að vera okkur hvatning til að bæta þar úr.