Gjald af kvikmyndasýningum

Föstudaginn 13. febrúar 1998, kl. 13:33:36 (3830)

1998-02-13 13:33:36# 122. lþ. 67.5 fundur 414. mál: #A gjald af kvikmyndasýningum# frv., Flm. KHG (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 67. fundur

[13:33]

Flm. (Kristinn H. Gunnarsson):

Herra forseti. Á þskj. 735 hef ég leyft mér að bera fram frv. til laga um afnám laga um gjald af kvikmyndasýningum en þau lög eru nr. 28 og voru sett 4. febrúar 1952. Í frv. er lagt til að lög þessi öðlist þegar gildi.

Í ljós hefur komið að sveitarstjórnir nýta ekki heimild í lögunum um álagningu og innheimtu gjalds af aðgangseyri að kvikmyndasýningum, öðrum en íslenskum kvikmyndum og fræðslumyndum, allt að 10%, sem verja skal til menningar- og líknarfélaga í viðkomandi sveitarfélagi. Í svari menntamálaráðherra við fyrirspurn flutningsmanns á þessu þingi kom fram að leitað var upplýsinga frá öllum kaupstöðum landsins. Svör bárust frá 17 og í ljós kom að enginn þeirra nýtir sér lengur þessa lagaheimild. Reykjavíkurborg og Akureyrarkaupstaður gerðu það en hættu því fyrir nokkrum árum. Þykir því ekki lengur forsenda fyrir umræddum lögum og er lagt til að þau verði afnumin.

Með frv. þessu fylgir sem fskj. svar menntmrh. við fyrirspurn flutningsmanns um gjald af kvikmyndasýningum sem borin var fram fyrr á þessu þingi og kemur fram í svarinu það sem vitnað er til í greinargerðinni.

Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til að fara frekari orðum um þetta frv. Að öðru leyti skýrir það sig sjálft. Ég legg til að málinu verði vísað til 2.umr. og hv. menntmn.