Sigríður Jóhannesdóttir:
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. heilbrrh. fyrir svörin. Ég tel vissulega góðra gjalda vert að meira fé sé veitt til forvarna en áður hefur verið gert. En það eru vandamálin sem blasa við varðandi þá 300 sem eru á biðlista á Vogi og komast ekki í meðferð þó þeir hafi sjálfir farið fram á að fá hana. Það þekkja allir aðstandendur slíks fólks að það er þyngra en tárum taki að horfa upp á fólk engjast og kveljast í mikilli neyslu sem leiðir það oft á barm þess sem getur kostað það lífið og það er að bíða eftir sjúkrarúmi sem það sjálft hefur beðið um en fær ekki vegna þess að svo mörg enn þá brýnni tilfelli koma á undan.
Ég verð að segja að þó að ég sé mjög hlynnt forvörnum þá tel ég að þetta mál megi ekki bíða til 2002 þegar við verðum væntanlega búin að útrýma fíkniefnaneyslu. Þetta krefst brýnna úrræða strax.