Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):
Virðulegi forseti. Ég vil endurtaka það að úrræðum hefur fjölgað mjög á undanförnum árum. Hv. þm. sagði að vissu heimili hefði verið lokað og það er rétt. En það kom annað heimili í staðinn. Og úrræðin þar eru ekki síðri. Það er rétt að það komi hér fram að úrræðum hefur fjölgað verulega og miklu nútímalegri meðferð er gefin varðandi þennan vanda en var fyrir nokkrum árum síðan. Á Íslandi eru t.d. fleiri úrræði fyrir áfengissjúka og vímuefnasjúka en annars staðar í löndunum í kringum okkur, fleiri rúm fyrir þessa sjúklinga.