Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar):
Herra forseti. Hv. 13. þm. Reykv. vék hér að tveimur lykilatriðum. Annars vegar ábendingu um að eðlilegt hefði verið að keyra þetta mál í gjaldþrot strax í upphafi. Hins vegar hefði sýslumaður átt að knýja fram riftun á samniningi milli skyldra aðila áður en frestur til þess rann út.
Hið athyglisverða í þessu máli er þó að Ríkisendurskoðun gerir hvergi athugasemd í þessa veru. Það er fyrst að dómsmrn. fær lögmann til þess að fjalla um málið að ábending í þessa veru kemur fram. Þá fyrst að Ragnar Hall skilar skýrslu er þetta sjónarmið sett fram á vegum dómsmrn.
Síðan víkur hv. þm. að því að umræddur einstaklingur hafi fengið sérmeðferð á vegum ráðherranna. Hvernig víkur því við? Því er alveg öfugt farið. Ríkisendurskoðun gerir þá kröfu að við tökum skuldabréf til 20 ára án veðheimilda og gjaldfellingarmöguleika sem greiðslu upp í sekt. Það mundi víkja til hliðar öllum grundvallarreglum og jafnræðisreglum. Við höfnum því að þessi einstaklingur fái sérmeðferð. Ráðuneytin hafna því. Ég stend við það og mun standa við að það er útilokað að ráðuneytin taki aðra afstöðu. Málið snýr þess vegna algerlega öfugt við það sem hv. þm. segir að þessu leyti. Við flytjum þann boðskap að lög standi ekki til þess að veita sérmeðferð. Þó að Ríkisendurskoðun krefjist þess að hún sé veitt, þá eigi ekki að gera það því að það sé bæði löglaust og siðlaust.