Valgerður Sverrisdóttir (andsvar):
Ef einhver hefur dregið í land, hæstv. forseti, þá er það hv. þm. Hún hefur náttúrlega samþykkt þessa bókun sem gengur út á að biðja ekki um þessa skýrslu. Ég sagði áðan að nefndin mundi ekki fara fram á það vegna þess að það er ekki innan hennar valdsviðs að biðja um skýrsluna. Hins vegar er ekki útilokað, og það kemur fram í textanum sem ég las rétt áðan, að einhverjir hlutar eða þættir skýrslunnar yrðu teknir til meðferðar af nefndinni. Því hef ég aldrei mótmælt.
Hvað reynslulausnina varðar, þá hefur það alltaf verið inni í textanum að til greina komi að fara yfir þann þátt málsins enda fellur hann undir upplýsingalög.
Það verður bara að vera skýrt, þegar við tökum málið fyrir í nefndinni, hver ramminn er. Okkur er annt um virðingu Alþingis og við förum ekki að biðja um upplýsingar sé það ekki í okkar verkahring vegna þrískiptingar valdsins. Ég veit að hv. þm. gerir sér fulla grein fyrir því enda hefur hún mikla þingreynslu.