Margrét Frímannsdóttir:
Virðulegi forseti. Ástæða þess að ég bið um orðið var sú að ég gat ekki beðið um andsvar aftur.
Hæstv. ráðherra sagði að við værum að þrýsta á sig vegna þess að við vildum fá svör við einhverju sem er ef eða kannski. Það er eðlilegt vegna þess að frv. felur í sér þetta ef eða kannski fyrir sjúklingana og þann vafa viljum við taka af. Þess vegna er verið að biðja ráðherra um skýrari svör en frv. felur í sér. Frv. segir ef eða kannski fyrir þá sjúklinga sem sitja uppi með þá reikninga sem þeir hafa nú þegar orðið að greiða suma hverja mjög háa sem hafa valdið þeim erfiðleikum.