Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég held að það sé ekki efni til þess að alhæfa neitt í þessu máli og fullyrða að þjónustan sé dýrari hjá bönkunum. Ég lít svo á að það yrði gert samkvæmt verktakasamningi og hann hefur ekki verið gerður. Hitt er alveg hárrétt hjá hv. þm. að meining mín er ekki að skapa neytendum kostnað eða óhagræði. Ég færi ekkert út í þetta nema með því að hafa trú á því og fullvissu um að neytendur muni hafa hag af breytingunni.
Hv. 5. þm. Austurl. talaði um að breytingar mættu ekki raska hag neytenda. Ég mundi vilja orða það þannig að ekki megi gera hag neytenda lakari en verið hefur.