Guðni Ágústsson:
Hæstv. forseti. Ég hef verið baráttumaður þess að Ljósheimar á Selfossi verði endurbyggðir. Á liðnu hausti átti ég ásamt Þorsteini Pálssyni, 1. þm. Suðurl. og hæstv. ráðherra, fund sem við höfðum óskað eftir með ráðamönnum Sjúkrahúss Suðurlands. Þar gerðum við áætlun um úttekt á ástandi Ljósheima. Húsnæðið stenst ekki kröfur um öryggi og vinnuaðstöðu. Ég þakka hæstv. heilbrrh. og starfsfólki heilbrrn. gott samstarf að þessu máli. Ég vil jafnframt þakka þann farveg sem hæstv. heilbrrh. hefur fundið málinu. Nú sýnist mér að langþráður draumur Sunnlendinga um nýja öldrunardeild við Sjúkrahús Suðurlands verði að veruleika.
Um Ljósheima vil ég jafnframt segja, þótt húsið standist ekki þær kröfur sem gerðar eru, að þar virðist mér öldruðu fólki hafa liðið afskaplega vel. Ég hef aldrei heyrt kvartað yfir þeim stað. Ég held að þar hafi öldruðum liðið vel, þar hafi verið góður starfsandi og gott starfsfólk. Ég vildi láta þetta koma fram við þessa umræðu.