Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Rétt er að ítreka að öllum íslenskum fiskiskipum sem hafa leyfi til veiða í landhelginni er að sjálfsögðu heimilt að hefja túnfiskveiðar og við höfum verið mjög hvetjandi til þess að íslenskir útvegsmenn gerðu tilraunir til að stunda þessar veiðar og vonumst til þess að þeir geri það. Þar eru engar takmarkanir og engar hindranir í vegi sem þarf að ryðja í burtu.
Varðandi þann rétt sem við sköpum okkur á alþjóðavettvangi vegna þess að veiðum úr þessum stofni er stjórnað af alþjóðastofnun er líka rétt að minna á að veiðireynsla erlendra skipa kemur okkur Íslendingum ekki að góðu. Ég tel þess vegna að erfitt sé að færa fram fyrir því rök að það eigi að opna landhelgi Íslands fyrir erlendum skipum til að styrkja veiðireynslu þeirra á þessu sviði. Við eigum fyrst og fremst að huga að því að styrkja veiðireynslu okkar sjálfra til að tryggja framtíðarhagsmuni Íslands í þessum veiðum.