Ágúst Einarsson:
Herra forseti. Það voru ótrúlega slök svör hjá hæstv. ráðherra við fyrirspurnum hv. þm. Svanfríðar Jónasdóttur. Hæstv. ráðherra skorast undan því að bera ábyrgð á fortíð Sjálfstfl. í menntamálum. Það er alvarleg staðreynd, herra forseti, að þessi flokkur hefur farið með menntamálin næstum því samfellt í 15 ár. Hv. þm. Svavar Gestsson var reyndar menntmrh. á tímabili, í tvö til þrjú ár. Þennan tíma hefur fjmrn. einnig verið í höndum Sjálfstfl. að verulegu leyti. Sjálfstæðismenn hafa því haft alla möguleika til að móta framsækna menntastefnu. Hæstv. ráðherra kemur hér og segir í svari við einni af spurningunum, fæstum þeirra svaraði hann, að rangt sé að skólar hafi verið í fjársvelti. Hæstv. ráðherra gerir lítið úr því að hér vanti starfs- og verknám. Það vita allir að starfs- og verknám er dýrara en bóknám og það er þess vegna sem ekki hafa verið skapaðir valkostir fyrir ungt fólk að fara í starfs- og verknám hér á landi. Vegna þess að það hefur verið varið of litlu fé til þessa málaflokks.
Það er sömuleiðis staðreynd að við verjum einna minnstu fé á hvern nemanda á grunnskólum af öllum OECD-ríkjum. Í öðru lagi erum við með einna lægst framlög til menntamála af öllum OECD-ríkjum. Í þriðja lagi verjum við einna minnstu til háskólanáms af öllum OECD-ríkjum. Við erum alls staðar, herra forseti, á botninum hvað varðar fjárframlög til menntamála. Þó svo að menntamál séu ekki einungis fjármál erum við langt á eftir öðrum þjóðum að skapa hér almennilega umgjörð um okkar menntamál. Við eigum að taka það mjög alvarlega, að við erum mjög aftarlega á merinni hvað varða samanburð við erlendar þjóðir í grunnskólum, í framhaldsskólum og í háskólum. Hæstv. ráðherra svaraði engu um þetta mál, herra forseti. Það er stefnuleysi, metnaðarleysi og peningaleysi sem einkennir menntastefnu Sjálfstfl.