Hollustuhættir

Þriðjudaginn 03. mars 1998, kl. 14:56:35 (4269)

1998-03-03 14:56:35# 122. lþ. 76.2 fundur 194. mál: #A hollustuhættir# (heildarlög) frv., HG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 76. fundur, 122. lþ.

[14:56]

Hjörleifur Guttormsson:

Virðulegur forseti. Við í minni hluta umhvn. teljum ekki vel til fallið að skeyta fylgiskjali, eins og hér er gert, við frv. til laga og ætla því, eins og ljóst er, að vera hluti af þessum væntanlegu lögum. Þetta er að vísu ekki fordæmalaust en miklu eðlilegra væri að fella þá upptalningu sem hér er um að ræða, fyrst að hún er hluti af lögunum, inn í viðkomandi lagagrein.