Umfjöllun um skólastarf

Miðvikudaginn 04. mars 1998, kl. 13:42:32 (4311)

1998-03-04 13:42:32# 122. lþ. 78.1 fundur 455. mál: #A umfjöllun um skólastarf# fsp. (til munnl.) frá menntmrh., BirnS
[prenta uppsett í dálka] 78. fundur, 122. lþ.

[13:42]

Birna Sigurjónsdóttir:

Hæstv. forseti. Mig langar að taka undir með hv. þm. Svanfríði Jónasdóttur um þörfina fyrir að auka umræðu um skólastarf, sérstaklega í tengslum við birtingu á niðurstöðum samræmdra prófa. Það sem mig langar kannski að bæta við er að ekki er síður þörf á að beina sjónum að samræmdu prófunum sjálfum. Eru þau besti mælikvarðinn sem við getum hugsað okkur á skólastarfið? Þetta þarf alltaf vera með í umræðu um þessi mál.